Schweinsteiger biðst afsökunar á níðsöng

Bastian Schweinsteiger brast í söng.
Bastian Schweinsteiger brast í söng. AFP

Þýski miðjumaðurinn Bastian Schweinsteiger, leikmaður Bayern München, hefur beðist afsökunar eftir að myndband af honum á bar birtist á veraldarvefnum.

Schweinsteiger er í sumarfríi en var í gleðskap með nokkrum stuðningsmönnum Bayern í München, tók þar lagið og söng móðgandi lag um Borussia Dortmund, sem er einn helsti keppinautur Bæjara í þýsku deildinni.

„Ég vil biðjast afsökunar á þessu, auðvitað vil ég ekki reyna að fegra þetta neitt, þetta er söngur stuðningsmanna, en ég ætlaði ekki að móðga neinn. Ég kann mjög vel við alla leikmenn Dortmund, þetta var bara óheppilegt augnablik,“ sagði Schweinsteiger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert