Eiður Smári til Indlands?

Eiður Smári Guðjohnsen gæti verið á leið til Indlands.
Eiður Smári Guðjohnsen gæti verið á leið til Indlands. Ljósmynd/Club Brugge

Eiður Smári Guðjohnsen er enn án félags eftir að samningur hans við Club Brugge rann út í sumar. Þar sem Eiður er samningslaus er hann ekki háður því að finna sér nýtt félag áður en félagaskiptaglugginn lokast um mánaðamótin en þessi 35 ára gamli markakóngur landsliðsins er ákveðinn í að halda áfram ferli sínum í vetur þótt óljóst sé hvar.

Á belgíska vefmiðlinum VoetbalNieuws eru indversk félög sögð á höttunum eftir Eiði, fyrir hina nýju indversku ofurdeild sem stendur yfir frá október fram til 20. desember. Þrjú eru sögð hafa rætt við Eið sem gæti fylgt á eftir mönnum á borð við Alessandro del Piero og David Trezeguet. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert