Sociedad kom til baka gegn Real Madrid

Inigo Martinez fagnar eftir að hafa komið Real Sociedad á …
Inigo Martinez fagnar eftir að hafa komið Real Sociedad á bragðið í kvöld. AFP

Real Sociedad vann í kvöld magnaðan 4:2 sigur á Real Madrid í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Alfreð Finnbogason var ekki með Sociedad í leiknum, en hann er að koma til baka eftir meiðsli.

Real Madrid komst í 2:0 eftir ellefu mínútna leik eftir mörk frá Sergio Ramos og Gareth Bale, en Inigo Martínez og Zurutuza jöfnuðu fyrir Sociedad fyrir hlé. Í síðari hálfleik skoraði Zuruta aftur áður en Carlos Vela innsiglaði 4:2 sigur Sociedad.

Þetta var í fyrsta sinn frá árinu 2006 sem Real Madrid tapar eftir að hafa náð tveggja marka forystu.

Barcelona er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir en vann nauman sigur á Villarreal í kvöld. Það var Sandro Ramírez sem skoraði eina mark leiksins átta mínútum fyrir leikslok og tryggði Börsungum 1:0-sigur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert