Brasilíski hægri bakvörðurinn Dani Alves mun yfirgefa herbúðir spænska knattspyrnuliðsins Barcelona næsta sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Andoni Zubizarreta íþróttastjóra liðsins.
„Við erum þakklát fyrir að Dani Alves hafi viljað vera hjá okkur allan þennan tíma. En nú er verða kaflaskil og það er sameiginleg ákvörðun að hann yfirgefi herbúðir Barcelona næsta sumar,“ er haft eftir Zubizarreta.
Dani Alves hefur leikið með Barcelona frá árinu 2008 en lék sex árin á undan með Sevilla á Spáni.