Jafnt hjá Atlético og Celta

Joao Miranda fagnar marki sínu fyrir Atlético Madríd gegn Celta …
Joao Miranda fagnar marki sínu fyrir Atlético Madríd gegn Celta Vigo í kvöld. AFP

Spánarmeistararnir í Atlético Madríd náðu ekki að fagna sigri á heimavelli sínum í kvöld þegar Atlético tók á móti Celta Vigo í 4. umferð spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu. Leik liðanna lauk með 2:2-jafntefli.

Pablo Hernández kom Celta yfir á 19. mínútu en Miranda jafnaði fyrir Atlético á 31. mínútu og tíu mínútum síðar náðu Madrídingar forystunni með marki frá Diego Godín. Nolito tryggði Celta stig úr leiknum þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 53. mínútu og úrslitin urðu 2:2.

Atlético Madríd hefur 8 stig að loknum 4 umferðum, hefur unnið tvo leiki og gert tvö jafntefli en Celta Vigo hefur 6 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert