Tévez afgreiddi AC Milan

Carlos Tévez fagnar marki sínu gegn AC Milan í kvöld.
Carlos Tévez fagnar marki sínu gegn AC Milan í kvöld. AFP

Juventus hafði betur í stórslag Juventus og AC Milan á San Síró leikvanginum í Mílanó í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Leiknum lauk með 1:0-sigri Juventus, þar sem argentínski framherjinn Carlos Tévez skoraði mark leiksins á 71. mínútu eftir undirbúning Paul Pogba.

Fyrir leikinn voru bæði lið með fullt hús stiga eftir tvær umferðir, en Juventus er nú komið skrefi á undan AC Milan í toppbaráttunni og hefur nú 9 stig gegn 6 stigum AC Milan að loknum þremur umferðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert