„Erum að drepa leikmennina“

Pep Guardiola.
Pep Guardiola. AFP

Pep Guardiola þjálfari þýska meistaraliðsins Bayern München er ekki ánægður með leikjaniðurröðunina en lið hans leikur í kvöld sinn þriðja leik á sjö dögum þegar það mætir nýliðum Paderborn.

Bayern hafði betur á móti Englandsmeisturum Manchester City, 1:0, í Meistaradeildinni á miðvikudaginn áður en það gerði jafntefli við Hamburg í deildinni á laugardaginn. Í kvöld tekur svo liðið á móti nýliðunum í Paderborn.

„Við erum að drepa leikmennina. Við ætlumst til of mikils af þeim. Leikmenn þurfa tíma til að hvílast. Þetta er sannleikur. Ekki bara hvað Bayern varðar heldur líka varðandi Dortmund og Leverkusen. Það er ómögulegt að spila á þriggja daga fresti með sömu leikmönnunum,“ segir Guardiola en hans menn hafa ekki alveg náð sér á strik í upphafi leiktíðar en meistararnir hafa unnið tvo leiki og gert tvö jafntefli í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert