Verona syrgir föður Emils Hallfreðssonar

Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson. AFP

Leikmenn og forráðamenn ítalska knattspyrnuliðsins Verona votta landsliðsmanninum Emil Hallfreðssyni dýpstu samúðarkveðju með kveðju sem birt er á vef félagsins en Emil missti föður sinn á dögunum.

Vegna andláts föður síns lék Emil ekki með liðinu sínu gegn Torino á sunnudaginn og fréttamannafundi félagsins fyrir leik liðsins á móti Genoa sem fram átti að fara í dag hefur verið aflýst. Þá hefur Verona óskað eftir því að fá að bera sorgarbönd í leiknum við Genoa annað kvöld vegna fráfalls föður Emils.

Í kveðjunni sem er rituð á heimasíðu Verona segir meðal annars;

„Við erum með þér Emil. Skyndilegt andláts föður þíns, Hallfreðs, er harmaþrungið og fær hjörtu okkar til að bresta. Við stöndum öll með þér Emil og þinni fjölskyldu.“

Mbl.is og Morgunblaðið senda Emil og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert