Guðlaugur Victor tryggði Helsingborg sigur

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. mbl.is/Golli

Guðlaugur Victor Pálsson opnaði markareikning sinn með sænska liðinu Helsingborg þegar liðið Åvidaberg, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Guðlaugur Victor, sem skrifaði undir þriggja ára samning við félagið á dögunum, skoraði sigurmarkið í leiknum á 67. mínútu en hann lék allan tímann. Arnór Smárson kom inná í liði Helsingborg á 83. mínútu.

Kristinn Steindórsson lék allan tímann fyrir Halmstad sem vann 3:0 útisigur á Brommapokjarna en Guðjón Baldvinsson fór af velli á 62. mínútu. Kristinn Jónsson lék ekki með Brommapokjarna sem er í neðsta sæti og er á leið úr deildinni.

Skúli Jón Friðgeirsson lék allan tímann fyrir Gefle sem tapaði á heimavelli fyrir Örebro.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert