„Er sögulegur leikmaður“

Mourinho gengur af velli eftir sigur sinna manna í kvöld.
Mourinho gengur af velli eftir sigur sinna manna í kvöld. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea hrósaði fyrirliðanum John Terry sem í kvöld lék sinn 100. leik í Meistaradeildinni þegar Chelsea bar sigurorð af Sporting í Lissabon.

„100 leikja klúbburinn er ekki fjölmennur. Aðeins fáir ná því að spila 100 leiki í Meistaradeildinni og það fyrir sama félagið,“ sagði Mourinho.

„Hann hefur kannski ekki verið fyrirliði í öllum þessum leik en klárlega í flestum af þeim. Hann er sögulegur leikmaður og mun skrá nafn sitt í sögubækur Chelsea,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert