Kristinn á ferðina eftir langa fjarveru

Kristinn Jónsson er á láni hjá Brommapojkarna frá Breiðabliki.
Kristinn Jónsson er á láni hjá Brommapojkarna frá Breiðabliki. mbl.is/Ómar

Vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson hefur hafið æfingar af fullum krafti með sænska úrvalsdeildarliðinu Brommapojkarna eftir að hafa verið frá keppni í einn og hálfan mánuð vegna meiðsla.

Kristinn greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni en hann spilaði síðast fyrir Brommapojkarna þann 13. ágúst.

Kristinn ætti því að geta tekið þátt í einhverjum af þeim fjórum leikjum sem eftir eru af tímabilinu en Brommapojkarna er langneðst í deildinni og þegar fallið niður í 1. deild. Kristinn er á láni hjá félaginu frá Breiðabliki út tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert