Ragnar spilar gegn Everton

Ragnar Sigurðsson í landsleik Íslands og Tyrklands.
Ragnar Sigurðsson í landsleik Íslands og Tyrklands. mbl.is/Ómar

Ragnar Sigurðsson, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu, er á sínum stað í vörn rússneska liðsins Krasnodar sem tekur á móti enska úrvalsdeildarliðinu Everton í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA.

Leikið er í Krasnodar og viðureign liðanna hefst klukkan 16.00. Everton er með þrjú stig eftir sigur á Wolfsburg í fyrstu umferðinni en Krasnodar gerði þá jafntefli við Lille í Frakklandi.

Lið Everton: Howard, Hibbert, Baines, Stones, Jagielka, Gibson, Barry, Atsu, McGeady, Osman, Eto'o.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert