Ekkert gengur hjá Alfreð og félögum

Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. Ljósmynd/heimasíða Real Sociedad

Alfreð Finnbogason lék allan tímann fyrir Real Sociedad þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Cordoba í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Það leit allt út fyrir að Alfreð og félagar væru að tryggja sér þrjú dýmæt stig. Inigo Martinez kom Real Socidad í 1:0 með marki á 22. mínútu en þegar þrjár mínútur voru til leiksloka jafnaði Xisco metin fyrir heimamenn og þar við sat.

Eftir níu leiki er Real Socidad í 17.sæti með með 6 stig en liðið hefur aðeins náð að vinna einn leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert