Emill Hallfreðsson var að vanda í byrjunarliði Verona þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Lazio á heimavelli í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Senad Lulic kom Lazio yfir á 42. mínútu en reynsluboltinn Luca Toni jafnaði fyrir heimamenn með marki úr vítaspyrnu þegar rúmar 10 mínútur voru til leiksloka.
Verona er í 11. sæti deildarinnar með 12 stig en Lazio í því þriðja með 16 stig.