Ragnar og félagar úr leik

Ragnar í leik með Krasnodar.
Ragnar í leik með Krasnodar. AFP

Ragnar Sigurðsson og félagar hans í Krasnodar féllu úr leik í rússnesku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Krilia Sovetov, 3:1.

Ragnar lék allan tímann fyrir Krasnodar sem lenti 2:0 undir snemma í síðari hálfleik. Krasodar minnkaði muninn í 2:1 20 mínútum fyrir leikslok en gestirnir gerðu út um leikinn með marki úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert