Alfreð og félagar drógust gegn Villareal

Alfreð Finnbogason fagnar fyrsta marki sínu með Real Sociedad í …
Alfreð Finnbogason fagnar fyrsta marki sínu með Real Sociedad í fyrrakvöld. Ljósmynd/realsociedad.com

Alfreð Finnbogason og félagar hans í Real Sociead drógust gegn Villareal í 16-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Liðin mættust í deildinni þann 7. þessa mánaðar og þá vann Villareal stórsigur, 4:0.

Stórleikur 16-liða úrslitanna er viðureign Evrópumeistara Real Madrid og Spánarmeistara Atlético Madrid en leikið er heima og að heiman í bikarnum.

Barcelona ætti að eiga greiða leið áfram í 8-liða úrslitin en liðið mætir Elche sem situr á botni deildarinnar.

Drátturinn lítur þannig út:

Malaga v Levante

Celta Vigo v Athletic Bilbao

Valencia v Espanyol

Granada v Sevilla

Barcelona v Elche

Atletíco Madrid v Real Madrid

Villarreal v Real Sociedad

Almeria v Getafe

Leikirnir fara fram 5. og 12. janúar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert