Suárez skoraði í stórsigri Barca

Luis Suarez
Luis Suarez AFP

Lionel Messi skoraði tvívegis þegar Barcelona burstaði Córdoba 5:0 í spænska fótboltanum
í dag og Luis Suárez skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barcelona í deildinni.

Pedro Rodriguez, Luis Suárez og Gerard Piqué skoruðu einnig en þrjú síðustu mörkin
komu á síðustu tíu mínútum leiksins.

Barcelona komst þar með upp fyrir Real Madrid og í toppsæti deildarinnar með 41 stig en Real sem er með 39 stig á tvo leiki til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert