Barcelona sló út níu liðsmenn Atlético

Neymar er hér að skora fyrir Börsunga.
Neymar er hér að skora fyrir Börsunga. AFP

Barcelona er komið í undanúrslit í spænsku bikarkeppninni eftir útisigur gegn Spánarmeisturum Atlético Madrid í kvöld, 3:2.

Það var heldur betur fjör í fyrri hálfleiknum. Fernando Torres kom Atlético Madrid í 1:0 strax á 1. mínútu en Börsungar jöfnuðu skömmu síðar með marki frá Neymar. Heimamenn komust aftur yfir þegar Raul Garcia skoraði úr vítaspyrnu á 30. mínútu. Staðan var orðin 2:2 á 38. mínútu þegar Miranda skoraði sjálfsmark og þremur mínútum síðar kom Neynar Barcelona í 3:2 forsytu. Á lokamínútu fyrir hálfleiks var Gabi leikmaður Atlético Madrid rekinn af velli og Mario Suarez annar leikmaður Atlético Madrid fékk sitt annað gula spjald á 84. mínútu en ekkert mark var skorað í seinni hálfleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert