Cristiano Ronaldo leikmaður Evrópumeistara Real Madrid slapp með skrekkinn en hann var í dag úrskurður í tveggja leikja bann af aganefnd spænska knattspyrnusambandsins.
Ronaldo fékk rautt spjald í leiknum gegn Cordoba um síðustu helgi fyrir að slá og sparka í mótherja sína. Sumir áttu von á þyngri refsingu en Ronaldo missir af leikjum sinna manna gegn Real Sociedad og Sevilla. Hann kemur því ferskur til leiks þegar Real Madrid mætir Spánarmeisturum Atlético Madrid þann 7. febrúar.