Frakkar lögðu Dani

Olivier Giroud og Simon Kjær í baráttu um boltann í …
Olivier Giroud og Simon Kjær í baráttu um boltann í kvöld. AFP

Frakkar höfðu betur gegn Dönum, 2:0, í vináttuleik sem fram fór í Saint Etienne í Frakklandi í kvöld.

Alexandre Lacazette skoraði fyrra mark Frakka á 14. mínútu og það var síðan Oliver Giroud leikmaður Arsenal sem innsiglaði sigur heimamanna með marki á 38. mínútu.

Didier Deschamps landsliðsþjálfari Frakka gerði átta breytingar á liðinu sem tapaði fyrir Brasilíumönnum 3:1 á fimmtudagskvöldið. Aðeins Raphael Varane, Morgan Schneiderlin og Antoine Griezmann héldu sætum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert