Bæjarar meistarar á morgun?

Bastian Schweinsteiger fagnar marki sínu í kvöld.
Bastian Schweinsteiger fagnar marki sínu í kvöld. AFP

25. meistaratitill Bayern München er innan seilingar en liðið vann í kvöld 1:0 sigur á Herthu Berlin og náði þar með 15 stiga forskoti á toppi deildarinnar.

Þýski landsliðsmaðurinn Bastian Schweinsteiger skoraði sigurmarkið á 80. mínútu leiksins og þegar fjórar umferðir eru eftir eru lærisveinar Pep Guardiola komnir með níu fingur og rúmlega það á meistaraskildunum sem þeir hafa hampað síðustu tvö tímabilin.

Wolfsburg sem er í öðru sæti deildarinnar spilar á morgun og tapi liðið stigum gegn Gladbach er meistaratitillinn Bæjara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert