„Besti hálfleikurinn á tímabilinu“

Neymar fagnar marki sínu í dag.
Neymar fagnar marki sínu í dag. AFP

Luis Enriqué þjálfari Barcelona var ánægður með leik sinna manna gegn grönnunum í Espanyol í dag en Börsungar innbyrtu þægilegan 2:0 sigur og náðu fimm stiga forskoti í spænsku 1. deildinnni í knattspyrnu á Real Madrid, sem á leik til góða.

„Ég held að þetta hafi verið besti fyrri hálfleikurinn hjá okkur á tímabilinu. Við vorum með boltann á þeirra vallarhelmingi, létum hann ganga vel á milli manna og sköpuðum okkur færi. Í seinni hálfleik spilaði liðið vel og það þrátt fyrir að við misstum mann af velli eftir tíu mínútur,“ sagði Enrique en þeir Neymar og Lionel Messi skoruðu mörk Börsunga í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert