Birkir tryggði sínum mönnum sigurinn

Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. Ljósmynd/pescaracalcio.com

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason var hetja Pescara þegar liðið lagði Virtus Lanciano, 1:0, á útivelli í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Birkir skoraði sigurmarkið á 75. mínútu en heimamenn misstu tvo menn af velli með rautt spjald á lokakafla leiksins.

Þetta var áttunda mark Birkis í deildinni á tímabilinu í 31 leik en Pescara er í 7. sæti deildarinnar og í harðri baráttu um sæti í umspilinu um A-deildarsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert