„Ég er ekki hreinn sveinn“

David Luiz er mikið í gríninu, en það eru þó …
David Luiz er mikið í gríninu, en það eru þó ekki allir sem meðtaka það. AFP

Hinn afar hárprúði varnarmaður, David Luiz, gagnrýnir fjölmiðla erlendis og sakar þá um virðingaleysi eftir að hafa gert mikið úr ummælum hans á samskiptavef Instagram á dögunum.

Luiz, sem er 28 ára gamall, er á mála hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi, en hann kom til félagsins síðasta sumar frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea.

Brasilíski varnarmaðurinn er mikill brandarakall, en hann ákvað í gríni að birta mynd af sér í sundlaug landa síns, Maxwell, á Instagram og skrifaði hann undir myndina að hann ætlaði sér ekki að stunda kynlíf fyrir giftingu.

Á myndinni má sjá Luiz ásamt tveimur öðrum karlmönnum standa í sundlaug í miðri skírnarathöfn, en myndin er tekin heima hjá Maxwell.

Ummælin fóru eins og eldur í sinu á netmiðlum, en Luiz var óánægður með fjölmiðla.

,,Ég er ekki hreinn sveinn. Ég hef átti fleiri en eina kærustu í lífi mínu,“ sagði Luiz við BBC.

„Sumt fólk í fjölmiðlum virðir ekki annað fólk. Ég get farið sáttur að sofa á hverju kvöldi og átt væran svefn því ég virði alla,“ sagði Luiz að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert