Costa, Mata og Herrera ekki valdir

Diego Costa skoraði 20 mörk fyrir meistara Chelsea í ensku …
Diego Costa skoraði 20 mörk fyrir meistara Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í vetur. AFP

Diego Costa, Juan Mata og Ander Herrera eru á meðal þeirra sem ekki komust í spænska landsliðshópinn í knattspyrnu sem valinn var fyrir komandi leiki við Kosta Ríka og Hvíta-Rússland.

César Azpilicueta, Thiago Alcántara, Mario Suárez og Fernando Torres eru einnig utan hópsins að þessu sinni. Leikmannahópinn má sjá hér að neðan.

Markverðir: Casillas, De Gea, Rico.

Varnarmenn: Carvajal, Piqué, Bartra, Ramos, Alba, Bernat.

Miðjumenn: San José, Busquets, Koke, Fàbregas, Nolito, Iniesta, Isco, Vidal, Silva.

Sóknarmenn: Morata, Alcácer, Vitolo, Pedro.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert