Fyrsti bikarmeistaratitill Wolfsburg

Dieter Hecking þjálfari Wolfsburg og leikmenn hans fagna bikarmeistaratitlinum.
Dieter Hecking þjálfari Wolfsburg og leikmenn hans fagna bikarmeistaratitlinum. AFP

Jürgen Klopp verður að gera sér að góðu að kveðja Dortmund með silfurverðlaunum í þýsku bikarkeppninni í knattspyrnu en liðið tapaði 3:1 fyrir Wolfsburg í úrslitaleiknum í kvöld.

Öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Pierre-Emerick Aubameyang kom Dortmund yfir strax á 5. mínútu en Luiz Gustavo jafnaði metin á 22. mínútu. Kevin de Bruyne og Bas Dost bættu svo við mörkum á 33. og 38. mínútu.

Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill Wolfsburg í sögu félagsins.

Jürgen Klopp þakkar stuðninginn í sínum síðasta leik sem þjálfari …
Jürgen Klopp þakkar stuðninginn í sínum síðasta leik sem þjálfari Dortmund. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert