Eiður fer í læknisskoðun á morgun

Eiður Smári Guðjohnsen er í Kína.
Eiður Smári Guðjohnsen er í Kína. mbl.is/Golli

Ekki hefur enn verið gengið frá samningum Eiðs Smára Guðjohnsens við kínverska knattspyrnufélagið Shijiazhuang Ever Bright en nú liggur fyrir að hann mun fara í lækniskoðun hjá félaginu á morgun.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Eiðs. Þar er sagt að hann sé í Shijiazhuang og muni sjá leik liðsins gegn Changchun Yatai í úrvalsdeildinni í dag. 

„Eiður hefur ekki skrifað undir neitt ennþá, þó fréttir hafi verið um annað, en hann fer í læknisskoðun á morgun," segir á síðunni en það er umboðsskrifstofan Total Football sem heldur utan um hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert