Victor með þrumufleyg utan teigs (myndskeið)

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. mbl.is/Golli

Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Helsingborg, kom liði sínu yfir gegn Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fyrir skemmstu.

Staðan var 1:1 í hálfleik en á 56. mínútu tók Guðlaugur Victor til sinna ráða og þrumaði boltanum viðstöðulaust í netið.

Þegar þetta er skrifað er staðan 2:2, en draumamark kappans má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert