Skrifaði undir í skrautlegum stuttbuxum

Arturo Vidal er mættur til Bayern
Arturo Vidal er mættur til Bayern Heimasíða Bayern

Þýska meistaraliðið, Bayern München, gekk í dag frá kaupum á Arturo Vidal, en hann kemur frá Juventus. Kaupverðið er 37 milljónir evra og gerir hann fimm ára samning við þýska stórveldið.

Vidal, sem er 28 ára gamall, kom til Juventus frá Bayer Leverkusen árið 2011, en hann hefur verið lykilmaður hjá liðinu sem hefur unnið deildina síðustu fjögur árin.

Hann hefur ákveðið að söðla um, en Bayern München kynnti hann í dag. Hann samdi við félagið til næstu fimm ára, en Bayern greiðir Juventus um 37 milljónir evra fyrir þjónustu hans.

Vidal var hæstánægður með skiptin, svo ánægður að hann mætti í stórfurðulegum stuttbuxum í kynninguna eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Vidal var í þessum skrautlegu stuttbuxum við undirskriftina, en líklegt …
Vidal var í þessum skrautlegu stuttbuxum við undirskriftina, en líklegt þykir að þetta sé vinsælt í Síle. Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert