Zlatan með „sprengju“

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Zlatan Ibrahimovic leikmaður franska meistaraliðsins Paris SG varpaði sprengju á blaðamannafundi eftir sigur Paris á Lyon í árlegum meistaraleik í franska fótboltanum í kvöld.

„Þetta gæti hafa verið minn síðasti leikur fyrir Paris SG. Ég er um það bil að taka mjög mikilvæga ákvörðun,“ sagði Svíinn eftir leikinn í kvöld.

Zlatan, sem er 33 ára gamall, hefur verið sterklega orðaður við ítalska liðið AC Milan og þá hefur hann verið orðaður við Manchester United sem og lið í bandarísku MLS-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert