Fyrsti leikur Kolbeins með Nantes

Kolbeinn greinilega ánægður með að vera kominn á ferðina á …
Kolbeinn greinilega ánægður með að vera kominn á ferðina á nýjan leik. Ljósmynd / heimasíða Nantes

Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson lék á dögunum sinn fyrsta leik með Nantes eftir að hann færði sig um set þangað frá Ajax. Kolbeinn hafði glímt við smávægileg meiðsli og gat ekki tekið þátt í fyrstu æfingaleikjum Nantes á undirbúningstímabilinu. Kolbeinn lagði upp fyrra mark Nantes í 2:0-sigri liðsins gegn Lucon.

Franska deildin hefst um næstu helgi og það eru góðar fregnir að Kolbeinn sé byrjaður að spila með Nantes og geti hafið tímabilið af fullum krafti með liðinu. 

Nantes mætir Guingamp á heimavelli sínum Stade de la Beaujoire í fyrstu umferð frönsku 1. deildarinnar á laugardaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert