Kjartan kominn á blað hjá Horsens

Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrir Horsens sem laut í lægra …
Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrir Horsens sem laut í lægra haldi gegn Lyngby í dag. Ljósmynd / bold.dk

Kjartan Henry Finnbogason og félagar hans í Horsens fara illa af í næstefstu deild í Danmörku í ár. Horsens tapaði í dag fyrir Lyngby með fjórum mörkum gegn tveimur og Horsens hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á tímabilinu.  

Kjartan Henry skoraði annað marka Horsens í leiknum úr vítaspurnu.

Næsti leikur Horsens er gegn Vejle Boldklub á föstudaginn næsta og Horsens vonast eftir að næla sér í sín fyrstu stig í þeim leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert