Auðvelt hjá Bæjurum sem fara í úrslit

David Alaba og Mario Götze fagna marki þess síðarnefnda í …
David Alaba og Mario Götze fagna marki þess síðarnefnda í kvöld. AFP

Bayern München spilar til úrslita við Real Madrid um Audi-bikarinn eftir auðveldan sigur á AC Milan í síðari undanúrslitaleik æfingamótsins í kvöld.

Juan Bernat kom Bæjurum yfir í fyrri hálfleik eftir undirbúning Doublas Costa og þeir Mario Götzw og Robert Lewandowski bættu við tveimur mörkum eftir hlé. Lokatölur 3:0.

Bayern mætir Real Madrid í úrslitum á morgun, en Madrídingar lögðu Tottenham 2:0 fyrr í kvöld eins og áður kom fram á mbl.is. Tottenham og AC Milan spila um bronsið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert