Danirnir slógu út Southampton

Southampton er úr leik í Evrópu.
Southampton er úr leik í Evrópu. AFP

Danska meistaraliðið Midtjylland, sem Eyjólfur Héðinsson leikur með, gerði sér lítið fyrir og sló út enska úrvalsdeildarliðið Southampton í forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Danirnir komast því áfram í riðlakeppnina.

Fyrri leiknum lyktaði með 1:1 jafntefli í Englandi, en dönsku meistararnir fóru með 1:0 sigur af hólmi á heimavelli í kvöld og fóru samanlagt áfram 2:1.

Eyjólfur lék ekki með liðinu en hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert