Alfreð fær aukna samkeppni

Brown Ideye er kominn til Olympiacos.
Brown Ideye er kominn til Olympiacos.

Gríska félagið Olympiacos sem landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason leikur með, gekk í dag frá kaupunum á framherjanum Brown Ideye frá enska úrvalsdeildarfélaginu West Brom.

Ideye varð dýrasti leikmaður í sögu West Brom á síðasta ári þegar hann var keyptur frá Dynamo Kiev á tíu milljónir punda, en hann skoraði aðeins sjö mörk í öllum keppnum fyrir félagið. Talið er að grísku meistararnir greiði um fjórar milljónir punda fyrir framherjann, sem er 26 ára gamall landsliðsmaður Nígeríu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert