Ragnar og félagar gerðu jafntefli

Ragnar Sigurðsson er hér lengst til hægri á myndinni í …
Ragnar Sigurðsson er hér lengst til hægri á myndinni í leik Hollands og Íslands í undankeppni EM 2016. JOHN THYS

Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var á sínum stað í vörn Krasnodar þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við UFA í 11. umferð efstu deildar í Rússlandi í dag. Ragnar spilaði allan leikinn í liði Krasnodar.

Semen Fomin kom yfir á 49. mínútu leiksins og Pavel Mamayev jafnaði svo metin fyrir Krasnodar tveimur mínútum síðar. 

Krasnodar er með 14 stig eftir 11 umferðir í deildinni og situr í níunda sæti deildarinnar.

Emmanuel Frimpong, fyrrverandi leikmaður Arsenal og fleiri enskra liða, fékk tvö gul spjöld og þar með rautt á 84. mínútu leiksins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert