Ekki er hann með barnið á brjósti er það?

Roy Keane er ekki allra.
Roy Keane er ekki allra. AFP

Gamla kempan Roy Keane er nú aðstoðarlandsliðsþjálfari Írlands í knattspyrnu, en hann hefur lengi verið þekktur harðhaus og kom það greinilega í ljós í viðtali á landsliðsæfingu í dag.

Írar mæta Þýskalandi í vikunni og var Keane spurður hvort nafni hans, Robbie Keane, yrði með liðinu í leiknum þar sem konan hans eignaðist barn í gærkvöldi. Það stóð ekki á svari hjá Roy.

„Af hverju ætti hann ekki að vera með? Ekki var hann að eignast barnið. Nema hann sé sjálfur með barnið á brjósti þá ætti hann að vera tilbúinn í slaginn,“ sagði Keane og uppskar hlátur blaðamanna á staðnum, en atvikið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert