Barcelona með Reus í sigtinu

Marco Reus.
Marco Reus. AFP

Spænsku meistararnir í Barcelona eru að undirbúa kaup á þýska landsliðsmanninum Marco Raus frá Borussia Dortmund fyrir næsta tímabil.

Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag en Börsungar eru sagðir reiðubúnir að punga út 30 milljónum evra fyrir leikmanninn en sú upphæð jafngildir tæpum 4,3 milljörðum íslenskra króna.

Reus er 26 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem kom til Dortmund frá Borussia Mönchengladbach. Hann hefur oftar en ekki verið orðaður við mörg af stóru liðunum í Evrópu en hefur haldið tryggð við Dortmund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert