Schweinsteiger er tæpur

Bastian Schweinsteiger.
Bastian Schweinsteiger. AFP

Bastian Schweinsteiger var fjarri góðu gamni í liði heimsmeistara Þjóðverja þegar þeir töpuðu fyrir Írum í undankeppni EM í gærkvöld.

Schweinsteiger var ekki leikfær vegna meiðsla og að sögn Joachim Löw er hann tæpur fyrir leik Þjóðverja gegn Georgíumönnum í lokaumferðinni á sunnudaginn.

Þjóðverjar eru í toppsæti D-riðilsins með 19 stig en Írar og Pólverjar koma næstir með 18 stig en liðin eigast við í Póllandi á þriðjudaginn í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitakeppni EM.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert