„Draumurinn rættist í kvöld“

Zlatan þakkaði fyrir sig þegar hann var tekinn af velli …
Zlatan þakkaði fyrir sig þegar hann var tekinn af velli í kvöld. AFP

Sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic var ánægður eftir heimkomuna til Malmö í kvöld. Lið hans, PSG, sigraði Malmö, 5:0, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu og Zlatan skoraði eitt mark. Með sigrinum tryggði PSG sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar.

„Það má segja að draumurinn hafi ræst í kvöld þegar ég kom aftur. Auk þess tókst mér að skora þannig að ég er ákaflega hamingjusamur,“ sagði Zlatan eftir leikinn í kvöld.

Zlatan hóf feril sinn með Malmö og hefur síðan þá leikið víða um Evrópu og unnið fjölda titla. Hann var ákaft hylltur þegar hann fékk heiðursskiptingu fimm mínútum fyrir leikslok.

„Ég hef átt frábært samband við stuðningsmenn Malmö alveg frá því ég hóf feril minn hér,“ sagði Svíinn stóri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert