Sölvi og Viðar bikarmeistarar í Kína

Viðar og Sölvi voru kampakátir eftir leikinn í dag.
Viðar og Sölvi voru kampakátir eftir leikinn í dag. Ljósmynd/Instagram

Sölvi Geir Ottesen, Viðar Örn Kjartansson og félagar þeirra í Jiangsu Sainty urðu í morgun bikarmeistarar í kínversku knattspyrnunni. Jiangsu Sainty sigraði þá Shang­hai Shenhua, 1:0 eftir framlengingu, í síðari bikarúrslitaleiknum.

Markalaust jafntefli varð í fyrri viðureign liðanna og Jiangsu Sainty dugði því eitt mark í dag til að tryggja sér titilinn. Króatíski landsliðsmaðurinn Sammir skoraði sigurmarkð á 109. mínútu leiksins.

Á meðal leikmanna í liði Shang­hai Shenhua eru Demba Ba, sem lék með Chelsea og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni, og Tim Cahill, sem gerði garðinn frægan hjá Everton.

Meðfylgjandi mynd birti Viðar á Instagram fljótlega eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert