Stórskemmtilegt mark Suárez - myndskeið

Lionel Messi rennir hér boltanum á Luis Suárez sem skorar …
Lionel Messi rennir hér boltanum á Luis Suárez sem skorar þriðja mark sitt og fjórða mark Barcelona í leiknum í kvöld. AFP

Luis Suárez skoraði þrennu þegar Barcelona gjörsigraði Celta Vigo með sex mörkum gegn einu í kvöld. Suárez fullkomanaði þrennu sína með afar skemmtilegum hætti. Suárez fékk þá sendingu frá Messi úr vítaspyrnu og skoraði 23. deildarmark sitt í vetur, en Suárez er markahæsti leikmaður deildarinnar. 

Messi og Suárez fetuðu þarna í fótspor Johans Cruyff og Jespers Olsen sem skoruðu ámóta mark fyrir Ajax árið 1982, en það mark má sjá hér.

Robert Pires og Thierry Henry reyndu síðan að líkja eftir þessu bragði með ansi mislukkuðum árangri fyrir um það bil tíu árum, en þá tilraun má sjá hér.    

Myndskeið af marki Suárez má sjá hér að neðan.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert