Zlatan boðar til blaðamannafundar

Zlatan Ibrahimovic er líklega á leið til Manchester United.
Zlatan Ibrahimovic er líklega á leið til Manchester United. AFP

Zlatan Ibrahimovic, framherji Paris Saint-Germain í Frakklandi, hefur boðað til blaðamannafundar á morgun, en þar mun hann að öllum líkindum opinbera næsta áfangastað sinn.

José Mourinho tekur við enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United á allra næstu dögum en enskir fjölmiðlar greina frá því að Zlatan Ibrahimovic komi til með að fylgja með.

Sænski framherjinn hefur lítið tjáð sig um framtíð sína síðustu vikur en ljóst er að hann verður ekki áfram í Frakklandi.

Hann er þessa stundina í æfingabúðum með sænska landsliðinu sem undirbýr sig fyrir Evrópumótið sem fer fram í Frakklandi en Zlatan mun sjálfur vera með blaðamannafund á morgun.

Fundurinn hefst klukkan 11:15 að staðartíma en fjölmiðlar halda því fram að hann greini betur frá framtíð sinni á honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert