Henry aðstoðar Martinez hjá Belgum

Thierry Henry.
Thierry Henry. AFP

Frakkinn Thierry Henry, fyrrverandi leikmaður Arsenal og Barcelona, hefur verið ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari Belga í knattspyrnu en belgíska knattspyrnusambandið greindi frá þessu í dag.

Fyrr í sumar var Roberto Martinez, fyrrverandi knattspyrnustjóri Everton, ráðinn þjálfari belgíska landsliðsins í stað Marc Wilmots sem ákvað að hætta eftir Evrópumótið í Frakklandi í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert