Alcacer til Barcelona

Paco Alcacer í leik með landsliðinu.
Paco Alcacer í leik með landsliðinu. AFP

Spænska stórliðið Barcelona er að ganga frá kaupum á spænska framherjanum Paco Alcacer frá Valencia.

Alcacer, sem er 22 ára gamall, hefur verið einn besti leikmaður spænsku deildarinnar síðustu tvö árin og hefur gert 24 mörk á þeim tíma.

Hann er nú á leið til Barcelona, en hann stóðst læknisskoðun í dag og verður líklega kynntur á allra næstu dögum.

Valencia hefur verið að missa öflugustu leikmenn sína síðustu daga, en Shkodran Mustafi gekk til liðs við Arsenal á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert