Viðar segir fréttina hlægilega

Viðar Örn Kjartansson á æfingu með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu.
Viðar Örn Kjartansson á æfingu með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðar Örn Kjartansson, sem gekk til liðs við ísraelska félagið Maccabi Tel-Aviv frá Malmö í dag, svarar frétt Fotballskanalen um óvinsældir sínar innan herbúða Malmö á Twitter-síðu sinni og segir fréttina aðhlátursefni. 

Kári Árnason, sem verið hefur liðsfélagi Viðars Arnar hjá Malmö á yfirstandandi leiktíð, tók í sama streng á Twitter-síðu sinni fyrr í dag, en fjallað var um viðbrögð Kára hér.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert