Rúnar með bæði mörkin í góðum sigri

Rúnar Már skoraði bæði mörk Grasshopper í dag.
Rúnar Már skoraði bæði mörk Grasshopper í dag. Andy Mueller/freshfocus

Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson skoraði bæði mörk Grasshopper er liðið sigraði Vaduz, 2:1, á heimavelli í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í hádeginu. Rúnar lék allan leikinn á miðju heimamanna.

Fyrra markið skoraði Rúnar um miðjan fyrri hálfleik, á 24. mínútu, og var staðan 1:0 að loknum fyrri hálfleik. Hann bætti öðru marki við í upphafi seinni hálfleiks. Gestirnir minnkuðu muninn þegar 20 mínútur voru til leiksloka og þar við sat.

Grasshopper er í 6. sæti deildarinnar með 12 stig að loknum níu umferðum. Rúnar hefur verið iðinn við markaskorun, en hann hefur skorað fjögur mörkum í þessum níu leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert