Sigurinn tók sinn toll

Antoine Griezmann fagnar marki sínu ásamt félögum sínum.
Antoine Griezmann fagnar marki sínu ásamt félögum sínum. AFP

Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann var enn og aftur hetja Atlético Madrid þegar liðið lagði Deportivo La Coruna, 1:0, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Griezman skoraði sigurmarkið á 70. mínútu en sigurinn tók sinn toll. Miðjumaðurinn Augusto Fernandez meiddist illa í fyrri hálfleik en talið er að hann hafi slitið krossband í hné og þar með spilar hann ekki meira á þessu tímabili.

Þá varð Jose Maria Gimenez einnig fyrir meiðslum og hætt er við því að hann missi af leiknum gegn Bayern München í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert