Tottenham mætir laskað til Moskvu

Harry Kane, framherji Tottenham Hotspur, meiddist í leik liðsins gegn …
Harry Kane, framherji Tottenham Hotspur, meiddist í leik liðsins gegn Sunderland fyrr í mánuðnum. AFP

Tottenham Hotspur verður án fimm lykilleikmanna sinna þegar liðið mætir CSKA Moskvu í annarri umferð Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.

Harry Kane, Eric Dier, Mousa Dembélé, Danny Rose og Moussa Sissoko fóru ekki með liðinu til Moskvu og verða fjarri góðu gamni í leiknum á morgun vegna meiðsla. 

Tottenham Hotspur fór illa af stað í Meistaradeildinni, en liðið laut í lægra haldi fyrir Monaco með tveimur mörkum gegn einu á Wembley í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Það gengur hins vegar betur í ensku úrvalsdeildinni, en liðið er í öðru sæti deildarinnar með 14 stig eftir sex umferðir og er fjórum stigum á eftir Manchester City sem trónir á toppi deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert