Jón Guðni ekki meira með á tímabilinu

Jón Guðni Fjóluson í búningi Norrköping.
Jón Guðni Fjóluson í búningi Norrköping. Ljósmynd/ifknorrkoping.se

Jón Guðni Fjóluson leikmaður sænska meistaraliðsins Norrköping leikur ekki meira með liðinu á leiktíðinni.

Jón Guðni varð fyrir höfuðmeiðslum í leik með Norrköping á móti norsku meisturunum í Rosenborg þegar þau áttust við í undankeppni Meistaradeildarinnar fyrir rúmum tveimur mánuðum síðan. Jón Guðni hefur ekkert spilað eftir það og læknar segja að verði ekki tilbúinn að spila aftur fyrr en eftir tvo mánuði.

Jón Guðni kom til Norr­köp­ing frá Sundsvall fyrir tímabilið og hafði spilað 14 leiki í deildinni með liðinu og skorað eitt mark áður en hann varð fyrir meiðslunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert